Ósonlagið
Hvað er ósonlagið?
Ósonlagið er svæði í efri hluta lofthjúps jarðar þar sem styrkur ósons er meiri en annars staðar í lofthjúpnum/gufuhvolfinu. |
Úr hverju er það?
Óson er sameind gerð úr þremur súrefnisfrumeindum (O3) og myndast í andrúmsloftinu við samruna súrefnisfrumeinda (O) og súrefnissameinda (O2). |
Hvað gerir það?
Ósonlagið gegnir mjög mikilvægu hlutverki fyrir lífríki jarðarinnar. Ósonsameindirnar gleypa nefnilega í sig skaðlega útfjólubláa geislun frá sólu. |